Haustfundur menningarfulltrúa landshlutasamtakanna

Menningafulltrúar landshlutasamtaka
Menningafulltrúar landshlutasamtaka

Í síðustu viku fór fram haustfundur menningarfulltrúa og verkefnastjóra menningarmála hjá landshlutasamtökunum.  Alla jafna hittist hópurinn að vori og hausti, og þá í höfuðborginni annars vegar og í einum landshluta hinsvegar. Fundir sem þessir eru nauðsynlegir til að stilla saman strengi um hvernig efla megi menningarstarf á landsbyggðinni og ekki síst standa að hagsmunagæslu lista um allt land.

Að þessu sinni hófst fundurinn í Reykjavík áður en lagt var af stað á Vestfirðina. Vestfjarðarstofa var gestgjafi í ár. Fundað var með List fyrir alla, þar sem Elfa Lilja Gísladóttir verkefnastjóri sagði frá því helsta sem er að gerast á þeim bæ, til að mynda verkefninu Málæði í samstarfi við Bubba Morthens sem gengur útá að efla börn og ungmenni í að tjá sig á skapandi hátt á íslensku. Rætt var við Vigdísi Jakobsdóttur sem senn lætur af störfum sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.

Því næst var menningar- og viðskiptaráðuneytið heimsótt þar sem fundað var með Örnu Kristínu Einarsdóttur skrifstofustjóra, Baldri Þór Guðmundssyni sérfræðingi og Jóhönnu Hreiðarsdóttur aðstoðarmanni ráðherra. Þá var fundað með Jónu Hlíf Halldórsdóttur forseta Bandalags íslenskra listamanna, Tónlistarmiðstöð og RÚV, með það fyrir augum halda áfram og efla samstarf og tengslanet.

Hefð er fyrir því að hópurinn kynni sér áhugaverð verkefni á milli funda. Á Patreksfirði var Vatneyrarbúð heimsótt, en Vatneyrarbúð er nýtt samvinnurými í glæsilegu nýuppgerðu húsi á staðnum, þar sem ýmis starfsemi hefur hreiðrað um sig. Á Bíldudal kynnti hópurinn sér starfsemi Skrímslasetursins sem hefur fest sig í sessi sem áhugavert verkefni í menningarferðaþjónustu. Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti var heimsótt ásamt Byggðasafni Vestfjarða á Ísafirði þar sem safnamál voru könnuð, skoðuð var Netagerðin sem er nýtt samvinnurými skapandi fólks á Ísafirði og nágrenni, menningarhúsið Edinborg var heimsótt og kynnt en margt fleira áhugavert var kannað og skoðað.

Að lokinni þéttri dagskrá héldu menningarfulltrúar heim á leið með hugmyndir og verkefni í farteskinu sem nýst gætu á sínum heimasvæðum. Fundir sem þessir eru því nauðsynlegir til eflingar menningarstarfs hjá landshlutasamtökunum listum til heilla. Menningarfulltrúar landshlutanna eru Guðlaugur Skúlason hjá SSNV, Hildur Halldórsdóttir hjá SSNE, Logi Gunnarsson hjá SSS, Skúli Gautason hjá Vestfjarðarstofu, Signý Ormarsdóttir hjá Austurbrú, Þórður F. Sigurðsson hjá SASS og Sigursteinn Sigurðsson hjá SSV