Handbendi brúðuleikhús hlaut á dögunum veglegan styrk úr Sviðslistasjóði og launasjóði sviðslistafólks samtals 24.000.000 kr. Þar af voru 10.560.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 24 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks. Handbendi brúðuleikhús er margverðlaunað brúðuleikhús sem er staðsett á Hvammstanga. Listrænn stjórnandi leikhússins er Greta Clough. Helstu áherslur Handbendi er að fókusera á nýsköpun í brúðugerð og gerð nýrra og frumlega verka sem túra um heiminn árlega. Leikhúsið er þekkt fyrir framúrskarandi verk og einstaka brúðuhönnun. Leikhúsið var m.a. valið Framúrskarandi verkefni á sviði menningarmála árið 2020 hjá SSNV fyrir brúðulista hátíðina Hvammstangi International Puppetry festival.
SSNV óskar Hendbendi brúðuleikhúsi og öllum sem að því koma innilega til hamingju með styrkveitinguna, þau eru svo sannarlega vel að þessu komin. Við hlökkum til að fylgjast með því sem er framundan hjá leikhúsinu en öflugt og blómlegt menningarstarf líkt og þeirra, styður við fjölbreytt menningarlíf í landshlutanum.
Lýsing verkefnis frá vef Stjórnarráðsins:
Handbendi Brúðuleikhús ehf. 24.000.000 kr.
10.560.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 24 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
Sviðslistahópur: Handbendi Brúðuleikhús
Forsvarsmaður: Greta Ann Clough
Tegund verkefnis: Brúðuleikhús/barnaleikhús
Heiti verkefnis: Rót/Rooted
Lýsing: Nýtt þjóðlaga- söngleiksbrúðuleikhús fyrir fjölskyldur. Umfjöllunarefnið er að finna eigin rætur þegar farið er að heiman - eða fjarri heimkynnum.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ásamt styrkþegum við úthlutun úr Sviðslistasjóði árið 2025.
Umsóknarfrestur í Sviðslistasjóð rann út 1. október 2024. Sjóðnum bárust 115 umsóknir og sótt var um ríflega 1,6 milljarð króna í Sviðslistasjóð og launasjóð sviðslistafólks (1581 mánuðir í launasjóðinn). Sviðslistaráð veitti 98 milljónum króna til 12 atvinnusviðslistahópa og fylgja þeim 102 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks (ígildi 57 milljóna), 98 mánuðum var úthlutað til einstaklinga í úthlutun listamannalauna.
Heildarstuðningur til sviðslistahópa og sviðslistafólks er því rúmlega 155 milljónir. Fjölda framúrskarandi verkefna sem áttu fullt erindi til að hljóta styrki Sviðslistasjóðs var hafnað. Eftir nýlegar breytingar á reglum sviðslistasjóðs geta verkefni nú náð til allt að 36 mánaða eða tveggja leikára.
Hæstu úthlutun fá að þessu sinni Handbendi brúðuleikhús, Menningarfélagið Tvíeind og Áhugafélagið Díó. Áhersla var lögð á að veittir styrkir væru sem næst umsóttri upphæð.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550