Góð og gagnleg heimsókn SSV á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á vesturlandi komu í heimsókn til okkar í vikunni. Við áttum tvo góða og gagnlega daga þar sem við ræktuðum tengsl og ræddum saman um verkefni og áskoranir landshlutasamtaka. Fyrri deginum eyddum við í Skagafirði þar sem við heimsóttum m.a. Byggðastofnun þar sem við ræddum samstarfið okkar á milli ásamt því að fara yfir starfsemi stofnunarinnar. Við fengum einnig kynningar frá þeim Amber frá Ísponica og Völu frá Kaffikorg í nýju húsnæði Ísponica á Hofsósi.

Daginn eftir keyrðum við yfir í Húnavatnssýslur, á Blönduósi fengum við kynningu á uppbyggingu gamla bæjarins þar. Glæsilegt verkefni og verður gaman að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu um komandi ár. Þar á eftir fórum við á Hvammstanga þar sem við héldum saman vinnustofu. Þar ræddum við nokkur verkefni beggja landshlutasamtaka og  ræddum um gerð nýrrar sóknaráætlunar.

Það er alltaf gott að hitta kollega okkar frá öðrum landshlutasamtökum, bera saman bækur og eiga samtalið um það hvernig við getum styrkt sambandið á milli samtaka enn betur. Takk fyrir komuna SSV.