Mannamót Markaðsstofana fór fram í s.l. fimmtudag 24.3. í Kórnum í Kópavogi. Þessi árlegi viðburður Markaðsstofana, sem ekki náðist að halda á síðast ári, er fyrir löngu orðinn fastur liður í samskiptum ferðaþjónustuaðila á landsbyggðinni og söluaðila á höfuðborgarsvæðinu, en einnig nýta aðilar s.s leiðsögumenn og fjölmiðlafólk sér þennan viðburð til að afla sér upplýsinga um það nýjasta sem í boði er. Það var virkilega ánægjulegt að sjá 20 fyrirtæki af Norðurlandi vestra taka þátt, en það er svipaður fjöldi og hefur verið á fyrri Mannamótum. Okkar fólk lét vel af viðtökunum og horfir björtum augum fram á veg m.t.t. bókunarstöðu. Og auðvitað voru allir sammála um að það væri mikill léttir að geta ftur farið að hitta fólk í raunheimum.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550