Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra stóðu sameiginlega að fjarfundi um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi. Á fundinum var fjallað um þær áskoranir sem sveitarfélögin standa frammi fyrir í tengslum við úrgangsmál. Eygerður Margrétardóttir hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga ræddi um breytta úrgangsstjórnun sveitarfélaga og í kjölfar hennar kom Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir frá Umhverfisstofnun og fjallaði um svæðisáætlanir, stöðu þeirra og hlutverk Umhverfisstofnunar í því sambandi. Að lokum sagði Helgi Þór Ingason frá forverkefni um framtíðarlausn til meðhöndlunar brennanlegs úrgangs í stað urðunar.
Fundurinn var tekinn upp og hægt er að sjá upptöku af fundinum hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550