Fulltrúar ferðaskrifstofa á ferð um Norðurland vestra

Tekið þátt í myrkragöngu hjá Þrístöpum og í Vatnsdalshólum.
Tekið þátt í myrkragöngu hjá Þrístöpum og í Vatnsdalshólum.

Í síðustu viku var starfsfólk nokkurra ferðaskrifstofa frá Reykjavík, alls níu manns, á ferð um Norðurland vestra. Ferðin, sem var skipulögð í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, stóð í tvo daga og heppnaðist einstaklega vel. Fjölmargir ferðaþjónustuaðilar á svæðinu voru heimsóttir en einnig voru sett upp stefnumót á Sauðárkróki, Blönduósi og Laugarbakka, sem voru misvel sótt. Svona ferðir nýtast vel í að kynna nýjungar og/eða breytingar fyrir fólki, sem dagsdaglega er að vinna í skipulagningu og sölu ferða til erlendra aðila og því mikilvægt að halda þeim vel upplýstum. Svona ferðir í bland við góða þátttöku ferðaþjónustuaðila af svæðinu á hinum árlegu mannamótum markaðsstofanna eru lykillinn að því að þekking á möguleikum svæðisins berist á rétta staði. Þátttakendur voru almennt ánægðir með það sem fyrir augu bar og  ekki spillti afbragðs veður báða dagana fyrir.