SSNV kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2023.
Þetta er í fimmta sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent í mars 2024.
Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum:
- Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
- Verkefni á sviði menningar.
Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið
2019 fengu: Sýndarveruleiki ehf. og Kakalaskáli.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið
2020 fengu: Vörusmiðja Biopol og Handbendi brúðuleikhús.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið
2021 fengu: Brúnastaðir í Fljótum, Maður og kona ehf. og Sögufélag Skagafjarðar.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið
2022 fengu: Austan Vatna og Ós Textíllistamiðstöð.
Tekið er við tilnefningum til miðnættis 24. janúar 2024 í gegnum
rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti. Reglur um viðurkenningarnar er að finna
hér.
Hér má finna upplýsingar um verkefni sem hlutu brautargengi úr Uppbyggingarsjóði fyrir árið 2023.