Framtíðarskrefin - nýjar dagsetningar fyrir tvær vinnustofur

Tveimur vinnustofum var frestað í september og eru nú komnar nýjar dagsetningar fyrir:

1) Íslenski hesturinn er hér, 28. október kl. 13:00 - 15:30 á Teams.

2) Samantekt - samstarfstækifæri, 29. október kl. 13:00 - 15:30 á Teams. 

 

Vinnustofurnar eru hluti af framhaldi Hugmyndasmiðju ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra. Nú gefst ykkur tækifæri til að máta og þróa tillögurnar við ykkar starfsemi og hvernig við sjáum þær ná flugi fyrir landshlutan okkar. Þau Hjörtur Smárason og Inga Rós Antoníusdóttir eru vinnustofustjórar.

 

Hér er frétt frá síðustu vinnustofum sem haldnar voru í september. 

Hér er hægt að skoða skýrslu Hjarta Smárasonar: Stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.