Eins og við greindum stuttlega frá í sumar verður umsóknarferli Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða apeins með fyrra fallinu í ár og því vonandi að einhverjir hafi notað tímann í að leggja drög að umsókn. Umsóknarfrestur í ár er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
Hins vegar er sjóðnum ekki heimilt m.a. að:
Ýtarlega er farið yfir umsóknarferlið og þau skilyrði sem þarf að uppfylla á sérstakri umsóknarsíðu á vef Ferðamálastofu en sjálft umsóknarformið er á island.is. Meðal annars kemur fram að umsóknir geta fallið í annan eftirfarandi flokka eftir eðli verkefnisins:
Væntanlegir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög sem gilda um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða nr. 75/2011 og reglugerð nr. 782/2017 og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt ýmsum frekari upplýsingum sem finna má á umsóknarsíðu.
Við minnum svo á að við erum að sjálfsögðu reiðubúin að aðstoða við gerð umsókna og hvetjum þá sem vilja nýta sér það að vera í sambandi sem first.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550