Forvitnir frumkvöðlar - gerð styrkumsókna með Þórunni Jónsdóttur 4. febrúar nk.

Það er komið að öðrum fyrirlestri í fyrirlestraröðinni Forvitnir frumkvöðlar. Þórunn Jónsdóttir fer yfir gerð styrkumsókna, en hún hefur skrifað yfir 300 umsóknir á sínum ferli. Markmið Þórunnar er að deila þekkingu sinni og reynslu sem víðast, enda trúir hún því að allir geti skrifað árangursríka styrkumsókn ef þeir fá góðan stuðning og réttu tólin til að ná árangri.

 

Fundurinn verður haldinn á TEAMS og hægt að skrá sig með því að smella hér.

Við vekjum líka athygli á viðburðinum á Facebook og hvetjum alla sem hafa áhuga og þekkja til áhugasamra frumkvöðla að deila þessu áfram. Hægt er að skoða Facebook viðburinn með því að smella hér.

Sjáumst á TEAMS þriðjudaginn 4. febrúar kl. 12.

 

Forvitnir frumkvöðlar eru sameiginleg mánaðarleg fræðsluerindi landshlutasamtakanna Austurbrúar, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofu. Fræðsluhádegin eru öllum opin, en þau gagnast sérlega vel frumkvöðlum og áhugafólki um nýsköpunarsenuna.

 

Næst á dagskrá í Forvitnum frumkvöðlum:

4. mars – Gervigreind og styrkumsóknir
1. apríl – Skapandi hugsun
6. maí – Viðskiptaáætlun á mannamáli
3. júní – Stofnun og rekstur smáfyrirtækja//ólík rekstrarform