Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, hafa veitt Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Byggðagleraugun 2023 fyrir framsækið og metnaðarfullt skólastarf. Katrín M. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri SSNV afhendi Þorkeli V. Þorsteinssyni aðstoðarskólameistara FNV viðurkenninguna á 31. Ársþingi SSNV þann 14. apríl síðast liðinn.
Byggðagleraugun er viðurkenning sem stjórn SSNV veitir til ráðuneytis eða stofnunar sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur mikla þýðingu fyrir samfélögin á Norðurlandi vestra og þykir fyrirmyndardæmi um metnaðarfullt skólastarf á landsvísu. Skólinn hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og er í stöðugri þróun í sínu framsækna og faglega skólastarfi.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra býður uppá staðnám á Sauðárkróki, dreifnám á Blönduósi, Hvammstanga eða Hólmavík. Nemendur í fjarnámi geta stundað námið hvaðan sem er af landinu eða hvar sem er í heiminum. Skólinn býður einnig uppá helgarnám í iðngreinum fyrir 23 ára og eldri og hefur hlotið mikið lof fyrir.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550