Eyrarrósin verður veitt í tólfta sinn snemma árs 2016, fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
Tíu verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar ásamt peningaverðlaunum og flugmiðum frá Flugfélagi Íslands. Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur verðlaun að upphæð 1.650.000 krónur. Nánari upplýsingar má finna hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550