Dansskóli Menningarfélags Húnaþings vestra tryggir sér sæti á Dance World Cup

Dansskóli Menningarfélags Húnaþings vestra átti glæsilega frammistöðu í undankeppni Dance World Cup sem haldin var á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu helgina 21.-23. febrúar. Danshópur skólans hafnaði í þriðja sæti í sínum flokki, sem tryggir hópnum sæti á heimsmeistaramótinu í dansi, Dance World Cup, sem fram fer á Spáni í byrjun júlí.

Með þessum frábæra árangri munu dansararnir frá Norðurlandi vestra vera fulltrúar Íslands á þessu alþjóðlega móti, þar sem keppendur koma víðs vegar að um heiminn.

Menningarfélag Húnaþings vestra hefur lagt mikla áherslu á að efla dansmenningu á svæðinu og hefur dansskóli félagsins notið stuðnings frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra til að efla starfsemi skólans. Skólinn er starfsræktur í Húnaþingi vestra og Húnabyggð.

Með framúrskarandi árangri og sæti á Dance World Cup hefur Dansskóli Menningarfélags Húnaþings vestra sannað gildi sitt sem mikilvægur hluti af menningar- og listalífi svæðisins.

"Krakkarnir stóðu sig frábærlega, og langt umfram það sem ég þorði að gera mér vonir um. Þau hafa sannað að þau eiga fullt erindi á lokakeppnina. Það verður að viðurkennast að við stöndum allt í einu frammi fyrir stóru verkefni til að fjármagna ferð þeirra á keppnina.  Við erum þakklát allri liðveislu við að koma þessum glæsilegu fulltrúum landshlutans á lokakeppnina á Spáni." segir Sigurður Líndal formaður Menningarfélags Húnaþings vestra

Fyrir þá sem vilja styðja danshópinn og leggja sitt af mörkum við að standa straum af ferðakostnaði til Spánar á Dance World Cup, er hægt að leggja inn framlög á bankareikning Menningarfélags Húnaþings vestra: Kennitala: 580116-2130 Reikningsnúmer: 0159-05-060370.

Við sendum hópnum innilegar hamingjuóskir og óskum þeim góðs gengis á Dance World Cup!