PISA - fyrirlögn á Norðurlandi vestra

Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar að starfsfólki til að vinna við PISA (Programme for International Student Assessment), alþjóðlega menntarannsókn á vegum OECD.

Verkefnið felur í sér fyrirlögn í 10. bekkjum grunnskóla á Norðurlandi vestra og Snæfellsnesi. Unnið verður á tímabilinu 17. mars til 2. apríl og um verktakavinnu er að ræða.

Verkefnið krefst öryggis í framkomu, reynslu af starfi með börnum eða unglingum og góðrar íslenskukunnáttu. Umsækjendur þurfa að hafa ökuréttindi. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.

 

Nánar um starfið hér.