Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar
Fundargerð
14. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn þriðjudaginn 23.05. 2017, kl. 13:00, að Faxatorgi á Sauðárkróki.
Mætt til fundar: Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Ingileif Oddsdóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, og Leó Örn Þorleifsson. Einnig sátu fundinn Sveinbjörg Rut Pétursdóttir og Ingibergur Guðmundsson starfsmenn SSNV. Formaður nefndarinnar stýrði fundi.
Fyrir var tekið:
1. Fundargerð fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar (AÞN) 22. maí. 2017.
Formaður kynnti hana.
2. Vanhæfi nefndarmanna í úthlutunarnefnd vegna umsókna í Uppbyggingarsjóð og atvinnu- og nýsköpunarsjóð, seinni úthlutun 2017.
Enginn lýsti sig vanhæfan gagnvart einstökum umsóknum.
3. Uppbyggingarsjóður Nl.v. seinni úthlutun 2017 – ákvörðun um styrkveitingar
Fyrir fundinum lá tillaga fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar að úthlutun styrkja. Nefndin fór yfir tillögurnar og ræddi þær. Samþykkt að 8 umsóknir fái styrk, alls að upphæð 10.600.000 kr. samkvæmt fylgiskjalinu „Ákvörðun úthlutunarnefndar uppbyggingar- og atvinnu og nýsköpunarsjóðs-maí 2017“.
4. Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Nl.v., seinni úthlutun 2017 – ákvörðun um styrkveitingar.
Samþykkt að 3 umsóknir hljóti styrk, alls að upphæð 7.900.000 kr. samkvæmt fylgiskjalinu „Ákvörðun úthlutunarnefndar uppbyggingar- og atvinnu og nýsköpunarsjóðs-maí 2017“.
5. Önnur mál.
a) Minnisblað fagráðs atvinnu- og nýsköpunar tekið fyrir. Úthlutunarnefnd hefur ákveðið að kalla saman fund fyrir næsta úthlutunarferli og taka ábendingar fagráðs til skoðunar.
b) Formaður kynnti stöðu á verkefni nr. 16034. Samþykkt að veita umsóknaraðila 15 daga frest á skilum á lokaskýrslu. Að þeim tíma liðnum fellur styrkveiting niður hafi lokaskýrsla ekki borist og krafa verður gerð um endurgreiðslu á þeim hluta styrkfjárhæðar sem greidd hefur verið.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 14:00
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550