Tvö verkefni á Norðurlandi vestra hlutu styrk úr Tækniþróunarsjóði

Tvö verkefni á Norðurlandi vestra hlutu styrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís árið 2024, ALOR sólarorkulausnir og María Eymundsdóttir fyrir ræktun burnirótar með aeroponic. Við óskum þeim innilega til hamingju með styrkinn. 

 

ALOR sérhæfir sig í hagkvæmum lausnum í sólarorkunýtingu og geymslu hennar, verkefnastjóri Alor er Linda Fanney Valgeirsdóttir. Í verkefninu nýtir Alor sérfræðiþekkingu sína á sviði geymslu rafmagns með því að innleiða svokallaðar sólarorkulausnir sem samanstanda af sólarpanelum og rafhlöðum. Með slíkum lausnum verður unnt að aðstoða fyrirtæki og stofnanir og síðar almenning við að efla orkusjálfstæði sitt, draga úr álagi á raforkukerfið og minnka olíunotkun. Verkefnið stuðlar að enn frekari þekkingaryfirfærslu til Íslands á tækni sem hefur um árabil verið notuð um allan heim með góðum árangri sem verður aðlöguð að íslenskum aðstæðum.

 

María Eymundsdóttir og eiginmaður hennar Pálmi Jónsson hafa stundað ræktun á burnirót í Skagafirði. Burnirót nýtur mikilla vinsælda sem heilsujurt en rótin er fjölær rótarmikill þykkblöðungur. Verkefnið snýst um ræktun burnirótar í aeroponic loftræktarkerfi til að stytta vaxtatíma hennar og kanna hvort að hægt sé að rækta hana eingöngu í aeroponic til að auðvelda og flýta fyrir ræktun og uppskeru á henni.

 

Virkilega framsækin og spennandi verkefni og er vert að fylgjast vel með framtíðar framgangi þeirra. 

 

Alls bárust 343 umsóknir og er árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum verkefnum 15% . Í þessari úthlutun var styrkveiting til nýrra verkefna 781 milljón króna en þar sem verkefnin eru til allt að þriggja ára nemur heildarkostnaður vegna þeirr 1.476 milljónum krónar.