Tvö námskeið á vegum Leiða til byggðafestu

Íbúum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra býðst fjölbreytt fræðsla haust og vetur 2024-2025 á vegum Leiða til byggðafestu. Hér að neðan birtast upplýsingar um námskeið og erindi sem í boði eru og er fólk beðið að skrá sig svo gera megi viðeigandi ráðstafanir. Námskeið og viðburðir á vegum verkefnisins eru þátttakendum að kostnaðarlausu nema annað sé tekið fram. 

Námskeið á vegum Leiða til byggðafestu:

Vönduð og hagnýt námskeið á netinu fyrir smáfamleiðendur matvæla er að finna hér

 

24. október í Félagsheimilinu Tjarnarlundi

Frá hugmynd að rekstri með Huldu Brynjólfsdóttur

Hulda er eigandi ullarvinnslunar Uppspuna. Hulda er búfræðingur og kennari. Alin upp í sveit og býr nú að Lækjartúni í Rangárvallasýslu. Þar reka hún og maðurinn hennar blandað bú, þar sem sauðfé og nautgripir leika lykilhlutverk. Ullarvinnsluna Uppspuna opnuðu þau árið 2017 með hinum störfum á bænum. Hún ætlar að fjalla um það að fá hugmynd og hvaða skref þarf að taka til að byrja. Hvað það er sem þarf til að stofna fyrirtæki, byggja það upp og halda því gangandi. Hulda ætlar að fara yfir þætti sem skipta máli frá því að hugmynd fæðist og yfir í starfandi fyrirtæki. 

Skráning á námskeið hér 

 

3. nóvember á Hótel Laugarbakka
Leiðtogafærni í eigin lífi með Jóni Halldórssyni 

Leiðtoganámskeið fyrir íbúa á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra á Hótel Laugarbakka. Námskeiðið er leitt af Jóni Halldórssyni hjá mennta- og þjálfunarfyrirtækinu KVAN og er það að kostnaðarlausu fyrir öll áhugasöm sem búsett eru á áðurnefndum svæðum.

Vilt þú finna kraftinn til þess að taka næsta skref? Vilt þú fá aukið sjálfstraust til þess að hámarka árangur í starfi og/eða einkalífi? Vilt þú verða markmiðadrifin(n) og ná aukinni einbeitingu í verkefnum en á sama tíma ná að njóta augnabliksins? Hvort sem þú vilt styrkja þig í persónulega lífinu eða annarsstaðar, þá ættu allir að geta grætt eitthvað á námskeiði KVAN. Nánar hér

Skráning á námskeið hér