Styrkir til meistaranema

Á árinu 2015 samþykkti stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að veita árlega á árunum 2016-18 styrki til allt að þriggja meistaranema við viðurkennda háskóla. Samþykkt þessi er gerð í tilefni af 70 ára afmæli sambandsins, sem stofnað var í júní árið 1945.

Skilyrði fyrir styrkveitingunni er að verkefnin sem sótt er um styrk til hafi skírskotun til markmiða eða aðgerða í stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Á hverju ári er gert ráð fyrir að sambandið tilgreini þá stefnumörkunarþætti, sem leggja ber áherslu á að fjallað verði um í þeim lokaverkefnum sem verða styrkt. Þannig getur sambandið forgangsraðað þeim málum, sem það kallar eftir umfjöllun um, í lokaverkefnum þeirra meistaranema sem fá samþykkta styrki.

Hér getur þú sótt um styrk til að vinna lokaverkefni á sviði sveitarstjórnarmála.