SSNV auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Leitað er að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og hefur góða hæfileika í mannlegum samskiptum.

Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólamenntun sem nýtist í starfi og marktæka reynslu af rekstri. Þekking á sveitarsjórnarmálum æskileg.

Umsóknarfrestur er til og með 21.september nk. Gengið verður frá ráðningu sem fyrst. Vinsamlega sendið umsóknir/starfsferilskrár til stra@stra.is. Þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi hringi eða sendi rafpóst og tilkynni þátttöku.