Opinn fundur um stöðu íbúðauppbyggingar á Norðvesturlandi

HMS, Tryggð byggð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fundarröð um land allt um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur.

Í samstarfi við SSNV er boðað til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar á Norðvesturlandi. Fundurinn verður haldin á veitingastaðnum Sauðá á Sauðárkróki miðvikudaginn 13. nóvember og hefst kl. 12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð.

Fundinum verður einnig streymt á Facebook síðu HMS.

Hér finni þið viðburðinn á facebook.

 

Dagskrá:

  • Staða og tækifæri á Norðurlandi vestra - samfélag í sókn
    Katrín M. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

  • Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur
    Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingar hjá HMS

  • Byggjum í takt við þarfir
    Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins

Fundarstjóri: Einar E. Einarsson, formaður stjórnar SSNV.