Opinn fundur fyrir sveitarfélög um vottanir bygginga og græna hvata

Þann 27. ágúst næstkomandi mun Umhverfisstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga standa að opnum fundi á Teams frá klukkan 10:30-12-00, fyrir öll sveitarfélög landsins með það að markmiði að fræða um vottanir bygginga og þær grænu fjármögnunarleiðir sem í boði eru.

 

Fundurinn er hluti að tveimur aðgerðum 5.2.6 Fræðsla til sveitarfélaga um vottanir og 6.2 Efla umræður og fræðslu á samstarfsvettvangi sveitarfélaga um græna fjármögnunarmöguleika sveitarfélaga og hagræna hvata sem þau geta boðið upp á fyrir vistvæna mannvirkjagerð sem finna má í vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 sem gefinn var út af Byggjum grænni framtíð sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð en það á meðal annars rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

 

Á fundinum munu sérfræðingar fjalla um mismunandi vottunarkerfi, reynslu sveitarfélaga, grænar fjármagnanir og fleira.

Við viljum vekja athygli sveitarfélaga á okkar svæði á fundinum og hvetjum kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga til að skrá sig. Skráning fer fram hér.

 

Hlekk á teams fundinn á finna hér.