Opið er fyrir tilnefningar fyrir fyrirtæki sem ykkur þykir hafa skarað framúr þegar kemur að ábyrgri hegðun, rekstri og framúrskarandi samfélagsábyrgð í ferðaþjónustu. Horft er sérstaklega til fyrirtækja sem hafa sett sér markvissa stefnu í: Starfsmannamálum, öryggis og gæðamálum ásamt heildstæðri sjálfbærnistefnu (sem tekur á umhverfi, nærsamfélagi og virðiskeðjunni í heild).
Tilnefningar geta verið frá aðilum sjálfum eða öðrum og hægt er að tilnefna fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir, einstaklinga eða alla þá sem þykja hafa unnið markvisst að jákvæðri þróun ferðaþjónustu og sjálfbærni, aðilar sem hafa í efni sínu og verki hvatt til ábyrgrar ferðahegðunar, ábyrgra viðskiptahátta og stuðlað að góðri umgengni um íslenska náttúru í sátt við íbúa.
Verðlaunin verða afhent af forseta Íslands sem jafnframt er verndari verkefnisins á Degi Ábyrgrar ferðaþjónustu þann 15.janúar kl 10:00.
Horft er til eftirfarandi þátta í leitinni að fyrirmyndar fyrirtæki í Ábyrgri ferðaþjónustu:
Tilnefningar skulu berast í gegnum þetta form eigi síðar en á hádegi þann 7. janúar.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550