Undirritaður hefur verið viðaukasamningur vegna verkefnisins Gamli bærinn á Blönduósi – aðdráttarafl ferðamanna, sem styrkt er á grundvelli sóknaráætlunar landshlutans fyrir hönd Húnabyggðar. Samningurinn er gerður með vísan í aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036.
Markmið verkefnisins er að hanna sýn og leikmynd að endurgerð gamla bæjarins á Blönduósi, sem og að þróa sögulega leiðsögn sem styður við markvissa uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. Verkefnið miðar að því að auka aðdráttarafl bæjarins, efla atvinnulíf og skapa ný störf í sveitarfélagi sem glímir við áskoranir í atvinnumálum.
Verkefnið skiptist í fjóra meginverkþætti:
Öflun gagna um sögu gamla bæjarins
Hönnunarvinna með þátttöku arkitekta
Gerð söguleiðsagnar í snjallforriti (appi)
Kynning og markaðssetning á niðurstöðum
Markmið viðaukasamningsins er jafnframt að færa heimamönnum aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna og tryggja tengingu á milli byggðaáætlunar og sóknaráætlana landshluta.
Verkefnið er enn eitt skrefið í átt að sjálfbærri þróun og nýtingu menningararfs til að skapa spennandi framtíð fyrir samfélagið í Húnabyggð.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550