Ferðaþjónustuvikan 2025 og Mannamót markaðsstofa landshlutanna!

Ferðaþjónustuvikan 2025 verður haldin dagana 14.-16 janúar. Sem fyrr verður lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá. Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.

Dagskrá:

  • 14. JANÚAR:
    • Kl. 8:30-10:00: Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar
    • Kl. 13:00-16:00: MICELAND - vinnustofa og uppskeruhátíð fyrir fyrirtæki í MICE ferðaþjónustu
  • 15. JANÚAR
    • Kl. 9:30-12:00: Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu með áherslu á sjálfbærni áfangastaðarins
    • Kl. 12:30-14:50: Ferðatæknimót, leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örstefnumótum
    • Kl. 15:00-17:00: Rannsóknir og menntun í ferðaþjónustu
  • 16. JANÚAR

 

Skráning á Mannamót markaðsstofa landshlutanna er hafin.

Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem rúmlega þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að kynnast betur fólki í ferðaþjónustu og fjölmörgum fagaðilum sem koma á Mannamót.

Ísland hefur upp á margt að bjóða, allan ársins hring og á Mannamótum eru sýnendur hvattir til þess að leggja sérstaka áherslu á það sem boðið er upp á yfir vetrartímann. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Isavia og Norlandair.

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Allar markaðsstofurnar munu bjóða sínum samstarfsfyrirtækjum, sem skrá sig á Mannamót, á sérstakan undirbúningsfund þar sem farið verður yfir hvað gott er að hafa í huga fyrir svona sýningu, hvaða kynningarefni hentar best og svo framvegis. Þessir fundir verða auglýstir þegar nær dregur.

 

Skráningu sýnenda lýkur þann 19. desember 2024. Verð fyrir sýnendur er 31.900+ vsk.

Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig sem sýnanda: https://www.markadsstofur.is/skraningsynenda

Smelltu hér fyrir upplýsingasíðu fyrir sýnendur: https://www.markadsstofur.is/is/vidburdir/mannamot/synendur