Ert þú með hugmynd að áhersluverkefni fyrir árið 2025?

SSNV auglýsir eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2025. Áhersluverkefni eru hluti af Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029 og eru skv. samningi um sóknaráætlanir: „verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna“.

Áhersluverkefni eru ekki verkefnastyrkir heldur er um að ræða sérverkefni sem unnin eru af SSNV eða öðrum þeim sem SSNV felur framkvæmd þeirra.

Dæmi um fyrri áhersluverkefni eru t.d.:

  • Auknar fjárfestingar á Norðurlandi vestra
  • Ungt fólk á Norðurlandi vestra
  • Matvælasvæðið Norðurland vestra, stuðningur við smáframleiðendur matvæla, námskeiðahald og sölubíll. 
  • Skíðasvæði á Norðurlandi vestra,
  • Stuðningur við nýsköpun á Norðurlandi vestra,
  • Skrifstofusetur á Norðurlandi vestra

 Hér má finna yfirlit fyrri áhersluverkefna SSNV.

Áhersluverkefni skulu eins og fram kemur í samningi um sóknaráætlanir hafa skýra mælikvarða og vera samþykkt af stjórn SSNV. Stjórn leggur mat á verkefnin og áskilur sér rétt til að gera breytingar á innsendum hugmyndum, þ.m.t. sameina sambærileg verkefni, samþykkja verkefni að hluta sem og í heild eða hafna öllum hugmyndum. Einnig þurfa verkefnin að hljóta staðfestingu stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál. Það er því ekki bara undir okkur komið hver endanleg verkefni verða. Það sem gott er að hafa í huga er að þau rými við gildandi sóknaráætlun, séu sókn en ekki vörn, séu virði fyrir landshlutann sem heild og ekki bein innviðamál sem eru t.d. á borði sveitarfélaga eða annrra. 

Ertu með hugmynd að verkefni sem:

  • Fellur að markmiðum sóknaráætlunar á einhverju þeirra fjögurra málefnasviða sem í henni koma fram, sem eru: atvinnuþróun og nýsköpun, menningarmál, umhverfismál eða menntamál og lýðfræðileg þróun.
  • Hefur skírskotun til Heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
  • Hefur skýr markmið og árangursmælikvarða.

Þá hvetjum við þig til að senda inn hugmynd  þar sem fram kemur lýsing á verkefninu ásamt mögulegri framkvæmd þess.

Hugmyndir skulu sendar í gegnum rafrænt form fyrir 25. nóvember 2024. Ekki er tekið við hugmyndum eftir öðrum leiðum eða eftir þann tíma.

Gert er ráð fyrir að ákvörðun um áhersluverkefni liggi fyrir í janúar 2025.