Áhugakönnun á vinnustofum fyrir ferðaþjónustu á Indlandi

Íslandsstofa vill kanna áhuga á þátttöku í vinnustofum fyrir ferðaþjónustu á Indlandi á árinu 2016. Undanfarið hafa hin ýmsu kvikmyndaverkefni frá Indlandi verið unnin á Íslandi og möguleiki að vinna með þann meðbyr sem Ísland hefur fengið á indverska markaðnum.
Ef áhugi reynist fyrir hendi hjá íslenskum aðilum í ferðaþjónustu stendur því til að skipuleggja vinnustofur í a.m.k. þremur borgum á Indlandi á þessu ári.

Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Þorleif Þór Jónssonthorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000, fyrir 20. janúar nk.

Sjá nánar hér.