Byggðaþróun - styrkir til meistaranema

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.400.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám við viðurkenndan háskóla.

 

Umsóknarfrestur er til hádegis (kl. 12:00) 1. nóvember 2024.

 

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir - hanndora@byggdastofnun.is

Einnig geti þið lesið nánar um styrkinn á vef Byggðastofnunar 

 

Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Á heimasíðu stofnunarinnar má sjá yfirlit verkefna sem hafa verið styrkt