Brúnastaðir tilnefnd til Emblunnar

Ostavinnslan á Brúnastöðum hefur verið tilnefnd til norrænu matvælaverðlaunanna, Emblan, í flokknum Norrænn matvælalistamaður.  Að baki verðlaunanna eru sex norræn bændasamtök, þar á meðal Bændasamtök Íslands. Markmiðið er að lyfta norrænni matarmenningu og skapa aukinn áhuga á henni útaf svæðisins. Embluverðalunin fara fram í mars á næsta ári í Osló.

Ostavinnslan er afrakstur mikils undirbúnings sem hófst vorið 2018 þegar hjónin Jóhannes Ríkharðsson og Stefanía Hjördís Leifsdóttir sóttu námskeið hjá Farskóla Norðurlands vestra, Matarsmiðja, Beint frá býli. Fullbúin aðstaða til ostagerðar var sett upp á Brúnastöðum og árið 2020 komu fyrstu vör­urn­ar á markað og selja þau nú nokkr­ar teg­und­ir af geita­osti. Brúnastaðir hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurland vestra 2021.

Ostarnir hafa verið fáanlegir í bíl smáframleiðenda sem keyrir um Norðurland vestra eftir skipulögðu leiðarkerfi. Bíllinn er eins konar bændamarkaður á hjólum og fer á milli byggðalaga. Nánari upplýsingar hér.