Á 83. fundi stjórnar SSNV var tekin fyrir bókun Skagafjarðar um málefni fatlaðs fólks. Í bókuninni eru reifaðar áhyggjur vegna stöðu fjármögnunar verkefnisins. Stjórn SSNV bókaði svohljóðandi um málið:
,,Lögð fram bókun byggðaráðs Skagafjarðar um stöðu málefna fatlaðs fólks. Stjórn SSNV tekur heilshugar undir þær áhyggjur sem reifaðar eru í bókuninni. Hallinn á málaflokknum á árinu 2021 er áætlaður 13 milljarðar sem fellur á sveitarfélögin. Sveitarfélögin tóku við verkefninu í góðri trú á árinu 2011 en verkefnið hefur verið vanfjármagnað frá upphafi auk þess sem auknar kröfur hafa verið lögð á sveitarfélögin án þess að aukið fjármagn hafi fylgt. Stjórn SSNV skorar á ríkisvaldið að bregðast við með auknum fjárframlögum strax á þessu ári."
Bókun sveitarfélagsins Skagafjarðar er svohljóðandi:
,,Byggðarráð Skagafjarðar lýsir yfir miklum áhyggjum af sívaxandi halla á rekstri málaflokks fatlaðs fólks. Ljóst er að sveitarfélögum var falin mikil ábyrgð með tilfærslu málaflokksins frá ríkinu til sveitarfélaga árið 2011 og áskoranir í þjónustunni urðu enn stærri með lagabreytingum árið 2018.Lögbundið framlag til sveitarfélaganna og fjárframlög Jöfnunarsjóðs standa engan veginn undir rekstri málaflokksins og hefur svo verið um nokkurra ára skeið. Nýleg greining starfshóps ráðherra á kostnaðarþróun í þjónustu við fatlað fólk árin 2018-2020 leiðir í ljós að rekstrarniðurstaða sveitarfélaga landsins vegna málaflokksins var neikvæð um 8,9 milljarða króna og hafði þá þrefaldast á þremur árum frá 2018. Ljóst er að hallinn á árinu 2021 var umtalsvert meiri.Byggðarráð Skagafjarðar fagnar skipan starfshóps félags- og vinnumarkaðsráðherra um mótun tillagna um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk og skorar á ráðherra að hraða vinnu hópsins þannig að hann skili af sér niðurstöðum fyrir Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 28. september nk. Fyrirmyndar að skjótum viðbrögðum má sækja í verkfærakistu matvælaráðherra sem skipaði fyrr í sumar svokallaðan spretthóp sem gekk fumlaust og vasklega til verks.Byggðarráð leggur enn fremur áherslur á að ríkisvaldið tryggi aukið fjármagn til málaflokksins á árinu 2022 til að stöðva langvarandi halla á rekstri hans.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550