Stjórn SSNV hefur sent Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra bókun þar sem fram koma áhyggjur af fjárhagsstöðu sveitarfélaga vegna áhrifa Covid-19. Er skorað á ráðherra að tryggja að ekki komi til skerðinga framlaga úr jöfnunarsjóði vegna versnandi afkomu ríkissjóðs. Sú aðgerð væri besta almenna aðgerðin til hjálpar sveitarfélögunun í landinu.
Bókun stjórnar í heild sinni:
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lýsir yfir miklum áhyggjum af áhrifum Covid-19 faraldursins á fjárhagsstöðu sveitarfélaganna á starfssvæði samtakanna og þeim áhrifum á framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem ástandið mun hafa vegna versnandi stöðu ríkissjóðs.
Ef litið er til nýlegrar greiningar Byggðastofnunar á áhrifum faraldursins á sveitarfélög í landinu er ljóst að þau verða mikil. Lausafjárstaða og sjóðsstreymi sveitarfélaga mun breytast til hins verra. Tekjur munu dragast saman vegna breytts atvinnustigs með hruni ferðaþjónustunnar og afleiddra greina og þannig hafa áhrif á útsvarsstofn sveitarfélaga til lækkunar. Hafnargjöld munu víða dragast saman og gera má ráð fyrir auknum kostnaði við félagsaðstoð. Til viðbótar við framangreint eru mörg sveitarfélög að bregðast við ástandinu með ýmiskonar átaksverkefnum og flýta framkvæmdum með tilheyrandi auknum kostnaði. Allt þetta mun óhjákvæmilega leiða til aukinnar skuldsetningar sveitarfélaganna.
Í áðurnefndri greiningu Byggðastofnunar kemur jafnframt fram að verði 10% samdráttur í skatttekjum ríkisjóðs gætu tekjur Jöfnunarsjóðs dregist saman um 4-5 milljarða sem hefur veruleg áhrif á rekstur sveitarfélaga í landinu. Sú skerðing til viðbótar við tekjuskerðingu vegna þeirra þátta sem nefndir voru hér að framan verður verulegt högg fyrir sveitarfélögin í landinu og til langs tíma leiða til þess að einhver sveitarfélög munu eiga í erfiðleikum með að halda úti lögbundinni þjónustu.
Það er ljóst að áhrif ástandsins á sveitarfélögin munu verða mismikil. Án efa munu fjárhagserfiðleikar einhverra sveitarfélaga kalla á sértækar aðgerðir af hálfu ríkisins. Stjórn SSNV vill hins vegar benda á mikilvægi þess að gripið verði til almennra aðgerða vegna ástandsins sem klárlega hefur áhrif á öll sveitarfélögin í landinu. Að mati stjórnar SSNV er vænlegasta almenna aðgerðin að tryggja að ekki verði skerðing á framlögum úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaganna með því að veita viðbótarfjármagni til sjóðsins. Þannig verði tryggt að fyrirsjáanlegar sveiflur í tekjum sjóðsins vegna efnahagsástandsins muni ekki hafa áhrif á framlög til sveitarfélaganna.
Skorað er á ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ríkisstjórnina alla að grípa til þessarar almennu aðgerðar til að styðja sveitarfélög í landinu öllu í að rækja sitt mikilvæga hlutverk í að komast yfir þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi. Skv. skýrslu OECD um svæðabundin áhrif Covid-19 faraldursis munu sveitarstjórnir leika lykilhlutverk í því endurreisnarstarfi sem mun þurfa að eiga sér stað á næstu misserum. Það er því gríðarlega mikilvægt að sveitarfélögin hafi til þess fjárhagslega burði og þar eru framlög Jöfnunarsjóðs mikilvægur þáttur. Þau framlög mega ekki skerðast eigi sveitarfélögin að geta rækt hlutverk sitt í endurreisninni og haldið úti nauðsynlegri þjónustu fyrir íbúa.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550