AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum

Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir tvo flokka: 

 

a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna 
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins.  Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en styrkumsókn er afgreidd.

 

b. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða til að undirbúa stærri verkefni á sviði rannsókna og/eða þróunar.  Styrkupphæð er allt að einni milljón króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða.  Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar.  

Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is.  

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.