Samkvæmt ákvörðun Alþingis úthluta atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og velferðarráðuneyti styrkjum af safnliðum ráðuneytanna. Styrkir eru veittir til félaga, samtaka, fyrirtækja eða einstaklinga eftir því sem við á hjá hverju ráðuneyti.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau njóta ekki lögbundis stuðnings eða falla ekki undir sjóði eða sérstaka samninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja þau sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.
Mat á umsóknum
Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytis almennt. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum, eftir því sem við á:
a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,
b) gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.
Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.
Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2016.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)
Nánari upplýsingar veitir Ásta Ingólfsdóttir í síma 545 9520 eða í tölvupósti á asta.ingolfsdottir@mrn.is
Mennta- og menningarmálaráðuneyti veitir styrki til eftirtalinna málaflokka:
Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem falla undir aðra málaflokka á verkefnasviði ráðuneytisins
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550