Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum vegna stuðnings við aðlögun að lífrænum framleiðsluháttum í samræmi við ákvæði V. kafla reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021.
Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. framangreindrar reglugerðar og hafa byrjað lífræna aðlögun í landbúnaði undir eftirliti faggildrar vottunarstofu og í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara, með síðari breytingum, geta sótt um aðlögunarstuðning.
Skilyrði fyrir stuðningi eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í þeim búgreinum sem við á hverju sinni.
Nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:
Nánari upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl má finna í framangreindri reglugerð.
Opið er fyrir rafrænar umsóknir á AFURÐ greiðslukerfi landbúnaðarins. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 15. maí nk.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550