Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna, sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036, aðgerð A.10 - Almenningssamgöngur á milli byggða. Markmiðið er að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja ýmsa sérakstursþjónustu við almenningssamgöngur. Til ráðstöfunar verða allt að 27 milljónir kr.
Í forgangi verða verkefni sem styðja við þróun leiðarkerfis, m.a. með samþættingu við aðra þjónustu eða breytingum á rekstrarformi.
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 5. maí 2025.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550