Atvinnu- og nýsköpunarhelgin

Markmiðið með helginni

Markmiðið er að fá fólk til að koma saman og vinna að nýjum (eða gömlum) hugmyndum sem gætu endað sem fyrirtaks viðskiptaáætlun og atvinnuskapandi verkefni. Í stað kyrrstöðu sækjum við fram. Samvinna er lykill helgarinnar.

Viltu taka þátt?

Helgin er hugsuð fyrir alla áhugasama, 18 ára og eldri sem vilja hrinda hugmyndum í framkvæmd. Hvort sem það eru þeirra eigin hugmyndir eða annarra áhugasamra einstaklinga um atvinnutækifæri. Hvort heldur sem hugmyndin er gömul eða ný. Þetta er einstakt tækifæri. Það kostar ekkert að taka þátt.

Nánari upplýsingar á heimasíðu ANA www.ana.is