Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) mótmælir harðlega ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar um að heimila Íslandspósti að draga úr póstdreifingu í aðildarsveitarfélögunum sjö sem standa að SSNV. Einnig mótmælir stjórn SSNV ákvörðun Íslandspósts þess efnis að draga úr þjónustu við íbúa Norðurlands vestra. Ákvarðanir ofangreindra aðila gera það að verkum að enn er vegið að þeirri grunþjónustu sem sjálfslögð og eðlileg þykir víðast hvar. Vert er að geta þess að þjónustuskerðingin tekur til um eða eitt þúsund (um 1/3 hluta) heimila/fyrirtækja á Norðurlandi vestra.
Ofangreind þjónustuskerðing byggir á lögum nr. 19/2002 og reglugerð um framkvæmd laganna nr. 868/2015, og að mestu á 2. málsgrein 10. gr. reglugerðarinnar.
2. mgr. 10 gr. hljóðar svo:
Á dreifbýlissvæðum, þar sem kostnaður við dreifingu er þrefaldur eða meiri miðað við sams konar kostnað í þéttbýli, er rekstrarleyfishafa heimilt að fækka dreifingardögum í annan hvern virkan dag. Rekstrarleyfishafi skal senda Póst- og fjarskiptastofnun tilkynningu þessa efnis með rökstuddri greinargerð um kostnað. Stofnunin skal yfirfara og staðreyna útreikninga rekstrarleyfishafa og eftir atvikum hafna eða samþykkja umsókn, innan þriggja mánaða.
Stjórn SSNV efast um lögmæti ofangreinds ákvæðis reglugerðarinnar og ákvarðanna ofangreindra aðila og minnir á að samkvæmt 21. gr. laga nr. 19/2001 skal Póst- og fjarskiptastofnun tryggja að alls staðar á landinu sé alla virka daga borinn út póstur sem fellur undir skilgreiningu á alþjónustu nema kringumstæður og landfræðilegar aðstæður hindri slíkt.
Í greinargerð með frumvarpi að ofangreindum lögum segir um 21. gr.:
Hér er fært í lög að póstsendingar innan marka alþjónustu skulu bornar út alla virka daga alls staðar á landinu nema kringumstæður eða landfræðilegar aðstæður komi í veg fyrir útburð. Slíkar kringumstæður geta verið ófærð og óveður eða sérstakar landfræðilegar aðstæður. Póst- og fjarskiptastofnun gerði árið 1999 könnun á möguleikum þess að koma á útburði pósts hvern virkan dag alls staðar á landinu. Kostnaður á ári var þá áætlaður tæplega 100 millj. kr. umfram þáverandi kostnað við útburð pósts. Með því að fella útburð pósts á virkum dögum undir alþjónustukvaðir verður að gera ráð fyrir að almenn gjaldskrá rekstrarleyfishafa sem veitir alþjónustu verði að hækka samsvarandi.
Hvergi í lögum nr. 19/2002 er gefin heimild fyrir afslætti á þessum skyldum öðrum en þeim sem fram koma í 21. gr. þ.e. að einungis „kringumstæður eða sérstakar landfræðilegar aðstæður“ komi í veg fyrir að póstdreifing eigi sér stað alla virka daga. Heimild til skerðingar póstdreifingar á fjárhagslegum forsendum er ekki til staðar og í lögskýringargögnum kemur fram að ætlunin hafi einmitt verið að gjaldskrá þjónustuaðila yrði að taka mið af þessum skyldum og því verður engnveginn séð að 2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar hafi stoð í lögunum. Það er og viðurkennd staðreynd að aðgerðir/ákvarðanir stjórnvalda, m.a. reglugerðir, sem eru íþyngjandi fyrir þegnana verði að hafa skýra og afdráttarlausa lagaheimild, en svo er alls ekki í þessu tilfelli. Auk
þessara ofangreindu atriða er það að mati stjórnar SSNV algerlega óásættanlegt að skerða eigi opinbera þjónustu sem þessa við 1/3 hluta íbúa á Norðurlandi vestra og skerða með því samkeppnishæfni svæðisins enn frekar.
Í ljósi ofangreinds mótmælir stjórn SSNV harðlega ákvörðunum Póst- og fjarskiptastofnunar og Íslandspósts og krefst þess að fyrrgreindar stofnanir draga ákvarðanir sínar til baka.
Adolf H. Berndsen formaður stjórnar
Unnur V. Hilmarsdóttir varaformaður stjórnar
Valgarður Hilmarsson
Sigríður Svavarsdóttir
Stefán Vagn Stefánsson
Björn Líndal Traustason framkvæmdastjóri SSNV
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550