Þar sem opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð verða starfsmenn SSNV með rafrænan kynningarfund í gegnum Zoom og á Facebook. Farið verður yfir helstu úthlutunarreglur og leiðbeiningar um gerð umsókna.
Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:
- Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
- Verkefnastyrkir á sviði menningar
- Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 12. nóvember 2021.