Fundargerð
1. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn föstudaginn 8. janúar 2016, kl. 13:00, að Einbúastíg 2 á Skagaströnd.
Mætt til fundar: Stefán Vagn Stefánsson, formaður, Jóhanna Magnúsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Leó Örn Þorleifsson. Ingileif Oddsdóttir boðaði forföll.
Einnig sátu fundinn Björn Líndal Traustason, framkvæmdastjóri SSNV, Ingibergur Guðmundsson, starfsmaður SSNV og Sólveig Olga Sigurðardóttir, starfsmaður SSNV, sem ritar fundargerð.
Formaður nefndarinnar stýrði fundi:
Dagskrá:
1. Starfsreglur Úthlutunarnefndar
Á 23. ársþingi SSNV, 16. okt. 2015, voru samþykktar starfsreglur fyrir Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra.
Afgreiðsla: Farið yfir starfsreglurnar og þær ræddar.
2. Verklags- og úthlutunarreglur Uppbyggingarsjóðs fyrir árið 2016
Fyrir fundinum lágu tillögur að breytingum á verklags- og úthlutunarreglum Uppbyggingarsjóðs sem verið höfðu í gildi árið 2015.
Afgreiðsla: Farið var yfir tillögurnar og samþykkt að senda endurskoðaðar reglur fyrir árið 2016 til stjórnar SSNV til samþykktar. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 15. febrúar nk.
3. Eyðublöð og auglýsing
Lögð fram eftirfarandi eyðublöð sem gilda fyrir árið 2016:
a) Umsóknareyðublað um styrki
b) Samningur um styrk og fylgiskjal með samningi
c) Lokaskýrsla fyrir styrki lægri en ein milljón kr.
d) Framvindu- og lokaskýrsla fyrir styrki sem eru hærri en ein milljón kr.
e) Drög að auglýsingu þar sem auglýst er eftir styrkumsóknum
Afgreiðsla: Ofangreind gögn voru til kynningar
4. Vinnuferli umsóknar- og úthlutunarferils
Afgreiðsla: Rætt um tilhögun vinnuferilsins framundan. Stefnt að ákvörðun um úthlutun styrkja seinni hluta marsmánaðar.
5. Önnur mál
a) Fundir úthlutunarnefndar verða sem hér segir:
22. febrúar kl. 13 á Skagaströnd
10. mars kl. 13 á Skagaströnd
14. mars kl. 13 á Skagaströnd
Fundir fagráða verða sem hér segir:
25. febrúar kl. 13 á Skagaströnd
3. mars kl. 13 á Skagaströnd
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 14.15