Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar.
Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra
Fundargerð
26. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn fimmtudaginn 17. desember 2020, kl. 10:00, á Skagaströnd.
Mætt til fundar: Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Jóhanna Ey Harðardóttir, formaður fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar og Ragnhildur Haraldsdóttir, formaður fagráðs menningar.
Einnig sátu fundinn starfsmenn SSNV, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir og Ingibergur Guðmundsson. Formaður nefndarinnar stýrði fundi.
Dagskrá:
1. Bréf framkvæmdastjóra SSNV sent til formanns úthlutunarnefndar 14. desember 2020, svohljóðandi:
„Í fjárhagsáætlun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) fyrir árið 2021 sem samþykkt var á haustþingi samtakanna þann 23. október 2020 er gert ráð fyrir að styrkirUppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra á árinu 2021 verði:
Til menningarmála 36.000.000 kr.
Til atvinnuþróunar og nýsköpunar 34.000.000 kr.
Að auki eru til ráðstöfunar fjármunir vegna styrkja sem hafa verið lækkaðir, felldir niður eða afþakkaðir af styrkþega. Þeir fjármunir skiptast þannig:
Til menningarmála 2.150.000 kr.
Til atvinnuþróunar og nýsköpunar 3.166.573 kr.
Samtals eru því til úthlutunar úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra á árinu 2021:
Til menningarmála 38.150.000 kr.
Til atvinnuþróunar og nýsköpunar 37.166.573 kr.
Samtals til úthlutunar 75.316.573 kr.
Óskað er eftir því að innihald þessa bréfs verði bókað í fundargerð úthlutunarnefndar
Uppbyggingarsjóðs.
Komi til þess að ekki verði öllum fjármunum úthlutað mun stjórn SSNV taka ákvörðun um
ráðstöfun eftirstöðva.“
2. Vanhæfi nefndarmanna við afgreiðslu umsókna í Uppbyggingarsjóð.
Nefndarmaður Umsóknir nr.
Lárus Ægir Guðmundsson : 21074
Lárus Ægir vék af fundi á meðan viðkomandi umsókn var rædd og afgreidd.
3. Fundargerð fagráðs menningar 26. nóvember 2020
Fundargerðin var til kynningar.
4. Fundargerð fagráðs menningar 8. desember 2020
Í fundargerðinni er m.a. greint frá því hvaða umsóknir fengu lægri einkunn en 5 og þar lagt til að þeim verði hafnað, skv. a) og b) lið 15. greinar verklags- og úthlutunarreglna Uppbyggingarsjóðs.
Úthlutunarnefnd staðfesti fundargerðina og þar með tillögu fagráðsins.
5. Fundargerð fagráðs menningar 15. desember 2020
Í fundargerð og fylgiskjali koma fram tillögur fagráðsins um styrkveitingar 2021.
6. Tillaga fagráðs menningar um styrki á sviði menningar - afgreiðsla
Fyrir fundinum lá tillaga fagráðs menningar, frá 15. des. sl., um úthlutun styrkja. Nefndin fór yfir tillögurnar og ræddi þær.
Samþykkt að 12 umsóknir fái stofn- og rekstrarstyrk alls að upphæð 17.300.000 kr.
Samþykkt að 29 umsóknir fái verkefnastyrk alls að upphæð 20.850.000 kr.
Sjá fylgiskjal: „Fagráð MENN – úthlutun 2021“
7. Fundargerð fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar 26. nóvember 2020
Fundargerðin var til kynningar.
8. Fundargerð fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar 9. desember 2020
Í fundargerðinni er m.a. greint frá því hvaða umsóknir fengu lægri einkunn en 5 og þar lagt til að þeim verði hafnað, skv. a) og b) lið 15. greinar verklags- og úthlutunarreglna Uppbyggingarsjóðs.
Úthlutunarnefnd staðfesti fundargerðina og þar með tillögu fagráðsins.
9. Fundargerð fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar 15. desember 2020
Í fundargerð og fylgiskjali koma fram tillögur fagráðsins um styrkveitingar 2021.
10. Tillaga fagráðs atvinnu- og nýsköpunar um styrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar - afgreiðsla
Fyrir fundinum lá tillaga fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar, frá 15. des. sl., um úthlutun styrkja. Nefndin fór yfir tillögurnar og ræddi þær. Samþykkt að 28 umsóknir fái styrk alls að upphæð 37.166.573 kr.
Sjá fylgiskjal: „Fagráð AÞN – úthlutun 2021“
11. Svarbréf til umsækjenda um styrk
Fyrir fundinum lágu drög að svarbréfum til umsækjenda. Ekki voru gerðar athugasemdir við drögin.
12. Úthlutunarhátíð
Vegna covid-19 samkomutakmarkana þá leggur nefndin til að úthlutunarhátíð falli niður að þessu sinni, svör verði send til umsækjenda þriðjudaginn 22. desember nk. og viðurkenningaskjöl verði send til styrkhafa í janúar í pósti.
13. Umsóknar- og úthlutunarferli - athugasemdir
Ein athugasemd kom frá fagráði AÞN og verður hún tekin til skoðunar fyrir næsta umsóknar- og úthlutunarferli.
14. Könnun meðal umsækjenda – niðurstöður
Í heild voru niðurstöðurnar jákvæðar.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 11.45.
Ingibergur Guðmundsson, fundarritari