Ráðgjafafyrirtækið Senza, SSNV og Vestfjarðarstofa standa fyrir hraðlinum Hugsum hærra fyrir fyrirtæki á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Í hraðlinum fá starfandi fyrirtæki sem vilja hugsa hærra aðstoð við að vinna fjárfestakynningar, móta stefnu og ramma inn viðskiptaáætlun. Sérstök áhersla er að styrkja fyrirtæki í gerð umsókna í nýsköpunarsjóði.*
Hraðallinn hefst 7. janúar á kynningarfundi og netnámskeiði. Vinnustofur standa yfir í þrjá daga, í vikunni 11-15. janúar (sjá dagskrá).
Einar Sigvaldason, MBA, stjórnendaþjálfi og ráðgjafi hjá Senza Partners leiðir hraðallinn. Einar hefur starfað í nýsköpun í 15 ár, sem framkvæmdastjóri og meðstofnandi þriggja sprotafyrirtækja á hugbúnaðarsviði og hefur fimm sinnum fengið Rannís styrki fyrir eigin fyrirtæki og tvisvar sprotafjármögnun.
Hraðallinn felur í sér:
Nánari upplýsingar um hraðalinn má nálgast á vefsíðu Senza.
Dagskrá:*
Leitað er eftir fyrirtækjum sem huga að efla starfsemi sína. Miðað er við að fyrirtæki séu nú þegar starfandi með vöru eða þjónustu á markaði. Vestfjarðarstofa og SSNV niðurgreiða hraðalinn þannig að þátttökugjald er 45.000 kr per fyrirtæki sem tekur þátt í hraðlinum. Athugið að stéttarfélög niðurgreiða í mörgum tilvikum allt að 90% af þátttökugjaldi.
Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2020.
Hafið samband við kolfinna@ssnv.is fyrir nánari upplýsingar.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550