8. september 2010
..:: Heim ::..

 

 

 Tilkynningar

 

 

  




 

 

 

 

 




 

 

 

 

 

 Ýmislegt
  

 Fréttir
apr.8 8.4.2010 13:03:00 - Jón Óskar Pétursson

SSNV atvinnuþróun í samvinnu við Nordic Emarketing og Útflutningsráð  standa fyrir námskeiði í Markaðssetningu á netinu í húsnæði Farskólans- miðstöðvar símnenntunar Faxatorgi 1 á Sauðárkróki mánudaginn 19. apríl. Námskeiðið stendur frá kl 16-20.

Nánari upplýsingar og skráning hér

 

meira...
mar.25 25.3.2010 13:47:00 - Stefán Haraldsson

Málþinginu um Hveravelli sem átti að vera þann 9. apríl næstkomandi hefur verið frestað af óviðráðanlegum orsökum.

mar.25 25.3.2010 08:14:00 - Jón Óskar Pétursson

Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hefur starfað óslitið frá haustinu 2007.  
Markmið rammaáætlunar er að skapa forsendur fyrir sátt um vernd ognýtingu náttúrusvæða. Í áætluninni skal leggja mat á og flokkavirkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita, og áhrif þeirra á náttúrufar og menningarminjar, meðal annars með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annarsþjóðhagslegs gildis,samhliða því að skilgreina og meta áhrif á hagsmuniallra þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði.

meira...
mar.5 5.3.2010 11:16:00 - Katrín María Andrésdóttir

Impra á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum um þátttöku í verkefninu Krásir sem er fræðslu- og þróunarverkefni í svæðisbundinni  matargerð.  Í verkefninu verður boðið upp á fræðslu auk faglegs og fjárhagslegs stuðnings við þróun og sölu matvæla.

Þátttaka í verkefninu er opin einstaklingum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni eða samstarfshópum einstaklinga og lítilla fyrirtækja sem óska eftir að vinna saman við þróun á matvörum.  Matvörurnar þurfa að vera ákveðin nýjung, en hafa um leið sterka skírskotun til viðkomandi svæða eða menningar.  Verkefnin þurfa einnig að vera í sterkum tengslum við ferðaþjónustu, t.d. með sölu beint til ferðamanna, á sveitahótelum, gististöðum eða í veitingahúsum á landsbyggðinni.  Umsóknarfrestur er til 18. mars 2010.

Rafrænt umsóknareyðublað má finna á vefsíðunni:  http://impra.sidan.is  ásamt leiðbeiningum um útfyllingu.  Mikilvægt er að vanda gerð umsóknarinnar og fylgja þeim leiðbeiningum sem gefnar eru. 

Nánari upplýsingar gefa Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnisstjóri í síma 522 9462 eða tölvupósti sirry@nmi.is og Sigurður Steingrímsson verkefnisstjóri í síma 522 9435 eða tölvupósti sigurdurs@nmi.is

 

 

mar.1 1.3.2010 10:15:00 - Gudrun Kloes

Ferðamálastofa hefur tekið ákvörðun um úthlutun styrkja vegna úrbóta á ferðamannastöðum fyrir árið 2010. Alls bárust 260 umsóknir, sem er um 18% fjölgun frá 2009 sem þá var metár.

Heildarupphæð sem sótt var um var um 510 milljónir króna en til úthlutunar að þessu sinni voru 48 milljónir króna, eða 9.4%

Til Norðurlands vestra komu 5,7 milljónir krónur, eða 11,9% heildarupphæðar.

 

meira...
 
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

 

 http://www.island.is/endurreisn

 

@ Allur réttur áskilinn
 
  Innskráning