|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
maí5 |
5.5.2010 08:08:00 - Ingibergur Guðmundsson |
|
Við úthlutun menningarstyrkja, sem fram fór að Gauksmýri 22. apríl, var undirritaður samningur við RARIK um áframhaldandi styrk við menningarstarf á árinu 2010.LinkClick.aspx
|
| |
|
apr.29 |
29.4.2010 10:41:00 - Jón Óskar Pétursson |
|
SSNV kannaði í marsmánuði síðastliðnum þróun starfa á vegum ríkisins á Norðurlandi vestra. Haft var samband símleiðis við forstöðumenn stofnana og spurt um fjölda stöðugilda í viðkomandi stofnun árið 2009. Samskonar könnun var gerð árið 2008. meira...
|
| |
|
apr.20 |
20.4.2010 14:39:00 - Gudrun Kloes |
|
Helgina 24.-25. apríl nk. stendur mikið til í íþróttahúsinu á Sauðárkróki en þá verður haldin atvinnu-, mannlífs- og menningarsýningin „Skagafjörður 2010 - lífsins gæði og gleði". Sýningin er haldin af Sveitarfélaginu Skagafirði í samstarfi við Skagafjarðarhraðlestina. meira...
|
| |
|
apr.20 |
20.4.2010 13:17:00 - Gudrun Kloes |
|
Þann 26.mars síðastliðinn úthlutaði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra 30. milljónum í styrki til atvinnumála kvenna í Hugmyndahúsi háskólanna. 55 styrkhafar hlutu styrki að þessu sinni en umsóknir voru 308 og hafa aldrei verið fleiri. Styrkir til atvinnumála kvenna hafa verið veittir frá árinu 1991 og á hverju ári hafa um 25 milljónum verið úthlutað.
Hæstu styrki að þessu sinni eða 2 milljónir hlutu Árla ehf til vöruþróunar og markaðssetningar á morgunkorni og KOLKA – til vöruþróunar og markaðssetningar á vörum sínum en fyrirtækið sérhæfir sig í viðskiptum tengdum kolefnisráðgjöf.
meira...
|
| |
|
apr.12 |
12.4.2010 15:00:00 - Stefán Haraldsson |
|

Laugardaginn 24. apríl 2010 kl. 10:00 býður Fræðasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra öllum áhugamönnum um sögu og samfélagsmál til síns fyrsta málþings
Í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fæðingu Valtýs Guðmundssonar á Skagaströnd eru Sveitarfélagið Skagaströnd og bókaútgáfan Urður þátttakendur í málþinginu
Nokkur brot úr sögu samskipta Íslands við erlend ríki
Til upprifjunar fyrir pólitíska umræðu
Málþingið er haldið í tengslum við formlega stofnun Fræðaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra föstudaginn 23. apríl. Um leið opnar Biopol sjávarlíftæknisetur nýjar rannsóknarstofur og haft verður opið hús í Nesi Listamiðstöð og Árnesi, elsta húsi bæjarins. meira...
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Innskráning
|
|