|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
okt.12 |
12.10.2009 10:34:00 - Katrín María Andrésdóttir |
|
Ferðamálastofa hefur auglýst eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2009. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.
Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.
Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar:
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða sveitafélög.
Hér með er óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009. Frekari upplýsingar veitir umhverfisfulltrúi stofnunarinnar, Sveinn Rúnar Traustason, í síma 535 5510.
Tilnefningar sendist til skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600
Akureyri eða með tölvupósti á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 30.
október næstkomandi. meira...
|
| |
|
okt.8 |
8.10.2009 12:14:00 - Katrín María Andrésdóttir |
|
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bjóða hér með öllu áhugafólki um atvinnumál í Húnavatnssýslum og Skagafirði til Dags atvinnulífsins sem haldinn er nú í fyrsta sinn. Með samkomunni er leitast við að styrkja tengslin milli starfandi fyrirtækja á svæðinu, hvetja einstaklinga í atvinnurekstri og örva nýsköpun. Ráðgert er að Dagur atvinnulífsins verði árlegur viðburður. meira...
|
| |
|
okt.8 |
8.10.2009 12:11:00 - Katrín María Andrésdóttir |
|
Stofnfundur Tengslanets kvenna á Norðurlandi vestra verður haldinn á Hótel Blönduósi miðvikudaginn 14. október n.k. kl. 20:00. meira...
|
| |
|
okt.7 |
7.10.2009 11:53:00 - Gudrun Kloes |
Uppspretta leiðir saman fólk, hugmyndir og lánsfé Á Uppsprettu getur þú óskað eftir láni eða lánað öðrum. Lántakandi setur fram sínar hugmyndir og óskir á vefnum og laðar þannig að sér lánveitendur. Uppspretta er ekki banki heldur miðlar lánsfé á milli lántakenda og lánveitenda. Uppspretta leggur áherslu á gagnsæi upplýsinga en með hverri lánsumsókn birtist lánshæfi lántakanda og einnig er hægt að spyrja lántakanda spurninga áður en lagt er fram lánsframlag.
meira...
|
| |
|
okt.6 |
6.10.2009 10:25:00 - Gudrun Kloes |
Dagana 22.- 24. október n.k. verður haldin Leonardó tengslaráðstefna í Reykjavík undir yfirskriftinni Applying Environmental Approach in Technical Vocational Education. Leonardó er starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og eru tengslaráðstefnur sem þessi kjörin leið til að kynnast hugsanlegum samstarfsaðilum í starfsmenntun víðsvegar að úr Evrópu. meira...
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Innskráning
|
|