|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
jan.20 |
20.1.2010 10:03:00 - Katrín María Andrésdóttir |
|
Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, SSNV atvinnuþróun og Matarkistan Skagafjörður boða til kynningarfundar um möguleika í vefverslun og beinni sölu á handverki og afurðum, sem og í matarferðaþjónustu.
Fundurinn verður haldinn á Hótel Blönduósi, fimmtudaginn 28. janúar nk. og hefst kl. 13:00. meira...
|
| |
|
jan.19 |
19.1.2010 09:01:00 - Jón Óskar Pétursson |
|
Sóknaráætlun 20/20 er ætlað að ná fram samstöðu um lykilákvarðanir og framtíðarsýn fyrir atvinnulíf og samfélag sem skili okkur til móts við bjartari og betri tíma eins hratt og örugglega eins og kostur er. Á tímabilinu 30. janúar nk. til 20. mars verða haldnir átta fundir í öllum landshlutum með þjóðfundarsniði. Þar munu koma saman fulltrúar landshlutanna, sérfræðingar og fulltrúar hagsmunaaðila ásamt jafnmörgum einstaklingum úr röðum heimamanna sem valdir verða með úrtaki úr þjóðskrá líkt og gert var fyrir Þjóðfundinn í Laugardalshöll yfir landið í heild. Búist er við 100 til 200 manns á hvern fund í landshlutunum. meira...
|
| |
|
jan.18 |
18.1.2010 11:07:00 - Gudrun Kloes |
|
Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.
Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7.febrúar. meira...
|
| |
|
jan.13 |
13.1.2010 15:08:00 - Gudrun Kloes |
|
Fimmtudaginn 7. janúar síðastliðinn var undirritaður samningur á milli ferðamáladeildar Háskólans á Hólum og Vaxtarsamnings Norðurlands vestra um styrk upp á 1.500.000 króna til rannsóknar á efnahagslegu umfangi, mikilvægi og eðli hestamennsku á Norðurlandi vestra. meira...
|
| |
|
jan.13 |
13.1.2010 08:12:00 - Katrín María Andrésdóttir |
|
Landnotkunarsetur Háskóla Íslands og Háskólafélag Suðurlands halda ráðstefnu á Hótel Selfossi, fimmtudaginn 28. janúar 2010. Ráðstefnugjald er kr. 7500 en kr. 3500 fyrir námsmenn.
Skráning fyrir 23. janúar á: http://www.fraedasetur.hi.is/page/sudurland_landnotkun_skraning
Fundarstjóri: Sigurður Sigursveinsson - Háskólafélagi Suðurlands. meira...
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Innskráning
|
|